Sæluríkið (Konráð, #6)

  1. home
  2. Books
  3. Sæluríkið (Konráð, #6)

Sæluríkið (Konráð, #6)

3.52 144 11
Share:

Sæluríkið er mögnuð og áleitin glæpasaga um brostna drauma, hugsjónir á villigötum og kalda grimmd – og fólk sem á stórra harma að...

Also Available in:

  • Amazon
  • Audible
  • Barnes & Noble
  • AbeBooks
  • Kobo

More Details

Sæluríkið er mögnuð og áleitin glæpasaga um brostna drauma, hugsjónir á villigötum og kalda grimmd – og fólk sem á stórra harma að hefna.

Við Hafravatn finnst ferðamaður látinn með áverka á höfði. Þegar ljóst verður að hann er í raun íslenskur og kom við sögu hjá lögreglunni þegar félagi hans hvarf nokkrum áratugum fyrr fer Konráð að grufla í samhengi hlutanna. Hans eigin fortíð blandast þar inn; umtalað morðmál frá áttunda áratugnum veldur uppnámi innan lögreglunnar og fornvinur hans, Leó, er farinn í felur. Um leið leitar tíðarandi kalda stríðsins á huga Konráðs, andrúmsloft samfélags í fjötrum sem litaðist af heift og flokkadráttum.

Arnaldur Indriðason er vinsælasti höfundur landsins, bæði heima og á erlendri grund. Sæluríkið er 27. skáldsaga hans. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem hafa verið þýddar á tugi tungumála og selst í nær tuttugu milljónum eintaka um heim allan.

  • Format:Hardcover
  • Pages:286 pages
  • Publication:2023
  • Publisher:Forlagið - Vaka-Helgafell
  • Edition:
  • Language:isl
  • ISBN10:9979227923
  • ISBN13:9789979227922
  • kindle Asin:9979227923

About Author

Arnaldur Indriðason

Arnaldur Indriðason

3.79 180597 15190
View All Books